- Madis Mäekalle, trompet: Fanfare eftir Marc-Antoine Charpentier
- Guðrún Hrafnhildur Steinþórsdóttir, píanó: Fountains in the Rain eftir William Gillock
- Ávarp skólastjóra
- Rebekka Skarphéðinsdóttir, píanó: Sónata í d moll eftir Domenico Scarlatti
- 75 ára afmælisár kynnt
- Skólakór, Barnakór og söngnemendur: Í vöggu lista eftir Halldór Smárason og Steinþór B. Kristjánsson
pdf skjal: Í vöggu lista – gjöf á 70 ára afmæli skólans
7. Fjöldasöngur með kórnum: Á vængjum söngsins (Thank you for the music) eftir Ólínu Þorvarðardóttur:
Ég virðist látlaus, ég verð sjaldan æst eða reið,
ef ég segi sögu, syfjar þig trúlega‘ um leið.
En leynivopn á ég, eitt dásemdarþing,
því kliðurinn þagnar þegar ég syng.
Það er hamingjugjöf
og mig langar að hrópa‘ yfir höf:
Á vængjum söngsins hef ég svifið
í sorg og gleði,
sungið dátt með glöðu geði.
Án þess væri lífið
svo laust við lit eða róm,
innihaldstóm – væri þá ævi tilveran öll.
Á vængjum söngsins hef ég svifið
um lífsins tónahöll.
Dálítil snót var ég dansandi‘ af lífi og sál.
Ég dreymandi söng – því söngur var mitt eina mál.
Já, oft hef ég hugsað hvers virði það er
að heyra og finna í brjóstinu á sér
þessa hljómkviðu slá,
hjartastrengina samhljómi ná.
Á vængjum söngsins hef ég svifið
í sorg og gleði o.s.frv.
Þakklæti finn ég
þegar ég syng af hjartans lyst.
Rödd mína þen ég hátt, svo allir heyri:
Þennan tón, þennan róm, þennan hljóm1
Söngs á vængjum svíf ég
í sorg og gleði.
Syng ég dátt með glöðu geði.
Án þess væri lífið
svo laust við lit eða róm,
innihaldstóm – væri þá ævi tilveran öll.
Á vængjum söngsins hef ég svifið
um lífsins tónahöll.
pdf skjal: Á vængjum söngsins Thank you for the music
7. Viðurkenningar
8. Skólakór, Barnakór og söngnemendur: Ísafjörður eftir Braga Valdimar Skúlason
Fjöldasöngur: Lagið Ísafjörður endurtekið
pdf skjöl: Ísafjörður-ljóð+nótur eða Ísafjörður- ljóð.
Í kvöld koma myndir frá skólaslitum inn á Tonis.is
Minnum á fasbókarsíðu skólans (alltaf gaman að fá LIKE).
Opið er fyrir umsóknir fyrir næsta skólaár
Í viðburðadagatali skólans má sjá það sem er framundan.
Munið að taka hljóðið af símunum, þið megið alveg taka myndir og deila þeim.
Takk fyrir veturinn, njótið sumarsins.
🙂 🙂 🙂 🙂