Langar þig að taka þátt í kórstarfi, árshátíðarsöngatriðinu, Sólrisuleikritinu og vantar undistöðu í söng?
Höfum nú fleiri pláss laus í einsöng næsta vetur. Það er líf og fjör í söngdeildinni. Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir og Sigrún Pálmadóttir eru hugmyndaríkir og framsæknir kennarar. Nú er lag fyrir þau sem hafa hug á að taka þátt í söngleikjum, hljómsveitum, kórum, gleðja fjölskyldumeðlimi með fegurri sturtusöng og svo eru einhver sem eiga þá ósk heitasta að verða frægir óperusöngvarar. Þetta er gullið tækifæri!
Endilega sækið um á tonis.is áður en allt fyllist.