Tónleikar starfsárið 2010-2011
Fimmtudagur 7.október 2010 kl. 20:00 – í Hömrum
Minningartónleikar um Sigríði og Ragnar H. Ragnar
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari flytur Partítu nr. 2 eftir Bach, allar prelúdíur Chopins og eigin umritanir á íslenskum sönglögum.
Sunnudagur 17.október 2010 kl. 15:00 – í Hömrum
1.áskriftartónleikarnir
Albert Mamriev píanóleikari og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari flytja píanóverk eftir Liszt, píanóumritanir Liszts úr óperum Wagners og umritanir á verkum Wagners fyrir fjórhent píanó.
Laugardagur 15.janúar 2011– í Hömrum
2.áskriftartónleikarnir
Tríó Sírajón (Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, Einar Jóhannesson klarinettuleikari og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari) flytja verk eftir Vanhal, Milhaud, Stravinsky og Jónas Tómasson.
Laugardagur 12.febrúar 2011– í Hömrum
3.áskriftartónleikarnir
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona, Herdísi Anna Jónsdóttir víóluleikari og Sólveig Anna Jónsdóttir píanóleikari flytja létta og leikandi dagskrá, íslensk sönglög í bland við óperuaríur. Í samvinnu við FÍT.
Miðvikudagur 2.mars 2011– í Hömrum
Blómatónar.
Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Semjon Skigin píanó. Verkin á dagskránni tengjast flest blómum á einhvern hátt.
Júní 2011 – í Hömrum
Alessio Bax, píanó og Lucille Chung, píanó – (í samvinnu við Við Djúpið)
3.áskriftartónleikarnir
Sumartónleikar 2011:
Selvadore og Tuuli Rähni – klarinett og píanó (Aukatónleikar í samvinnu þeirra og TÍ)
Eistneskt þjóðlagakvöld – (í samvinnu við Tónlistarskólann)
Kolbeinn Jón Ketilsson tenór, Unnur Astrid Wilhelmsen sópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó – Sumartónleikar í ágúst á þeirra eigin vegum með aðstoð frá TÍ