Sigrún Sævarsdóttir Griffiths er fagstjóri við Guildhall School of Music and Drama í London og verður hjá okkur í TÍ næstu þrjá daga í samvinnu við Starfsendurhæfingu Vestfjarða, þar sem hún ætlar að stofna hljómsveit og efna til lagasmiðju með skjólstæðingum starfsendurhæfingarinnar á Ísafirði. Þetta er feikilega merkilegt verkefni og Sigrún er mikill aufúsugestur.
Hún býður nemendum Tónlistarskólans upp á vinnusmiðju kl. 17-19 á morgun, mánudag, í Hömrum til að eiga góða stund. Öll velkomin.