Jónas Tómasson tónskáld, sem búsettur er á Ísafirði, er afar virkur í list sinni og fjöldi verka hans er fluttur árlega hér á Íslandi og erlendis. Tvö splunkuný verk eftir Jónas verða frumflutt á tónlistarhátíðinni „Myrkir músíkdagar" sem fram fer í Reykjavík um næstu mánaðamót. Á hátíðinni verða um 20 tónleikar – stútfullir af nýrri og nýstárlegri tónlist – flestir í Hörpunni, en dagskrána má skoða í heild sinni á heimasíðunni http://www.myrkir.is.
Föstudagskvöldið 1.febrúar flytur tónlistarhópurinn CAPUT nýjan píanókonsert „HANAMI“ eftir Jónas þar sem Tinna Þorsteinsdóttir er í einleikarahlutverkinu undir stjórn Snorra S. Birgissonar. Á lokatónleikum hátíðarinnar, sunnudagskvöldið 3.febrúar, flytur kammersveit Reykjavíkur nýtt kammerverk Jónasar þar sem flautan er í aðalhlutverki. Ezequiel Menalled stjórnar kammersveitinni en Áshildur Haraldsdóttir leikur á þverflautu,