Tónlistarhátíðin Við Djúpið verður 17. – 22. júní 2024.
Tónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram á Ísafirði dagana 17. – 22. júní. Á dagskrá er yfir tugur almennra tónleika þar sem ný og gömul tónlist mætast í meðförum framúrskarandi tónlistarmanna. Ísfirskt tónlistarfólk er áberandi í dagskránni. Boðið er upp á námskeið fyrir lengra komna tónlistarnemendur en einnig tónlistarleikjanámskeið fyrir börn.
Sjá nánar á heimasíðu hátíðarinnar: Við Djúpið
🙂