Miðvikudaginn 5. mars verða tónleikar menntskælinga í Hömrum. Tónleikarnir eru liður í Sólrisuhátíð Menntaskólans á Ísafirði og samstarfsverkefni milli hans og Tónlistarskóla Ísafjarðar. Er þetta í annað sinn sem slíkir tónleikar eru haldnir með þeim hætti. Á efnisskránni leika nemendur á gítar, bassa, trommur, píanó og fiðlu, auk þess sem við fáum að heyra einsöng og kórsöng Skólakórsins, en hann samanstendur af nemendum á efri stigum Grunnskólans og nemendum í Menntaskólanum. Tónleikarnir hefjast kl. 18:00, aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.