Skólasetning Tónlistarskóla Ísafjarðar hefur verið færð til miðvikudagsins 2.september kl. 18 í stað mánudagsins 31.ágúst eins og fyrirhugað var.
Tónlistarkennarar geta ekki skipulagt sína kennslu fyrr en stundatöflur í öðrum skólum eru komnar algjörlega á hreint og er oft flókið að púsla þessu saman. Þá er enn eftir að innrita nemendur í útibúum skólans á Flateyri, Suðureyri og Þingeyri en það verður gert strax eftir helgi.