Tónlistarskóli Ísafjarðar settur. Bergþór Pálsson skólastjóri setti skólann mánudaginn 23. ágúst. Tríóið Hljómórar flutti nokkur lög og gestir tóku hraustlega undir í Ó blessuð vertu sumarsól og Í faðmi fjalla blárra.

Tríóið Hljómórar flutti Ó blessuð vertu sumarsól og Haustbæn (ljóð: Svanhildur Garðarsdóttir, lag: Jóngunnar Biering) við skólasetninguna. F.v. Svanhildur Garðarsdóttir, Rúna Esradóttir og Jóngunnar Biering.

Bergþór talaði um reynslu af covid, þakklæti og mikilvægi Tónlistarskólans. Þá stjórnaði hann fjöldasöng í Einu sinni á ágústkvöldi og Í faðmi fjalla blárra.

Bergþór setur Tónlistarskóla Ísafjarðar