Skólagjöld skólaárið 2024-2025

12. september 2024 | Fréttir

Skólagjöld hafa verið send út fyrir september mánuð. Líkt og hefur verið er heildarupphæðinni er skipt niður í fjórar jafnar greiðslur yfir skólaárið. Greiðslutímabilin verða september, október & febrúar og mars. Skólagjöldin hafa verið umreiknuð með tilliti til greiddra staðfestingagjalda og systkinaafslátta ef slíkt á við. Gjöld fyrir Forskóla (börn sem eiga ekki systkini í skólanum) verða send út í október.

Verðskrá fyrir hljóðfæranám má sjá hér Skólagjöld

Vinsamlegast sendið leiðréttingar og athugasemdir um greiðsluhögun á netfang aðstoðarskólastjóra: finney.rakel@tonis.is

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is

Nýlegar færslur