Jólatorgsala Styrktarsjóðs Tónlistarskólans er orðinn ómissandi liður í jólahaldi Ísfirðinga og nágranna. Hún er jafnframt stærsti liðurinn í fjáröflun Styrktarsjóðsins. Að venju voru steiktar mörg hundruð laufabrauðskökur, sem seldar verða á torginu ásamt alls konar varningi sem velunnarar skólans gefa honum af miklu örlæti og eiga þeir innilegar þakkir skilið.
Enn á ný er leitað til nemenda tónlistarskólans og foreldra, um að gefa varning á torgsöluna, tertur, smákökur, jólasælgæti, jólasíld, föndur eða annað sem ykkur kann að detta í hug. Tekið verður á móti framlögum í anddyri nýja Grunnskólans laugard. kl. 12-13.