Miðsvetrartónleikar útibúanna á Flateyri og Suðureyri verða sameinaðir í eina kvöldtónleika í Eyrarodda á Flateyri kl. 20 í kvöld 4. mars. Fram koma um 16 nemendur og leika á píanó, gítar, bassa, trommur, blokkflautu og þverflautu, auk söngs. Samleikur nemenda verður áberandi enda hefur það til margra ára verið einkenni Miðsvetrartónleika Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Allir hjartanlega velkomnir!