Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar heldur stutta tónleika í verslunarmiðstöðinni Neista á Ísafirði fyrsta vetrardag, laugardaginn 22.október, kl. 13:00. Á efnisskránni eru nokkur vinsæl lög, m.a. eftir Cohen, Bacharach og Strauss. Stjórnandi sveitarinnar er Madis Mäekalle.