Vegna óveðurs og ófærðar hefur Grunnskólinn á Ísafirði nú aflýst allri kennslu í dag, þriðjudaginn 3. mars. Tónlistarskólinn fer að dæmi Grunnskólans og fellur niður öll kennsla, nema e.t.v. hjá örfáum fullorðnum nemendum sem eru þá beðnir að hafa samband við kennara sína. Athugið að öll hópakennsla fellur niður, forskóli, tónfræðigreinar, kórar og lúðrasveit.