Jólatorgsala Styrktarsjóðs Tónlistarskóla Ísafjarðar verður haldin á Silfurtorgi laugardaginn 5.desember og hefst kl. 15:00. Torgsalan er löngu orðin ómissandi þáttur í bæjarlífinu á aðventunni og einn stærsti liðurinn í fjáröflun Styrktarsjóðsins. Að venju voru steiktar mörg hundruð laufabrauðskökur, sem seldar verða á torginu ásamt alls konar varningi sem velunnarar skólans gefa honum af miklu örlæti og eiga þeir innilegar þakkir skilið.
Enn á ný er leitað til foreldra nemenda skólans og forráðamanna, um að gefa varning á torgsöluna, tertur, smákökur, jólasælgæti, jólasíld, föndur eða annað sem fóli kann að detta í hug.
Tekið verður á móti framlögum í anddyri nýja Grunnskólans laugard. 5. des. kl. 12:00 – 13:00
Heitt kakó, lummur og fjölbreyttur markaðsvarningur á Silfurtorgi kl. 15.00 á laugardaginn 5.des. Kveikt verður á jólatrénu, lúðraþytur, kórsöngur, jólasveinar! Sannkölluð aðventustemming!