Um næstu helgi er væntanlegur til Ísafjarðar ítalski píanósnillingurinn Domenico Codispoti. Laugardaginn 21. febrúar kl. 15 heldur hann einleikstónleika í Hömrum á vegum Tónlistarfélags Ísafjarðar og verður einnig með master-class á föstudeginum fyrir lengra komna nemendur Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir Liszt, Rachmaninoff, Schumann og Granados. Tónleikarnir eru 2. áskriftartónleikar félagsins á starfsárinu og gilda áskriftarkort sem aðgöngumiðar en einnig verður seldur aðgangur við innganginn.
Domenico Codispoti fæddist árið 1975 í Catanzaro í Calabria á Suður-Ítalíu. Eftir glæsilegan námsferil gerði hann víðreist og hefur hann haldið einleikstónleika og leikið með virtum sinfóníuhljómsveitum á meginlandi Evrópu, í Bandaríkjunum og Asíu. Codispoti hefur hvarvetna hlotið lof áheyrenda og gagnrýnenda fyrir leik sinn og hefur hann unnið til fjölda verðlauna. Hann hefur verið fenginn til að dæma í alþjóðlegum píanókeppnum og hin síðari ár hefur hann fengist í auknum mæli við að leiðbeina nemendum á masterclass námskeiðum.
Codispoti hefur áður sótt Ísland heim. Hann lék á Tíbrártónleikum í Salnum og á Ísafirði árið 2000, með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2001, í Ými árið 2003 og í Hafnarborg í samvinnu við Listahátíð 2006. Síðast sótti Codispotis Íslandi heim fyrir tveimur árum og hélt þá tónleika í Salnum og masterclass-námskeið. Tónleikarnir fengu framúrskarandi dóma og voru valdir einir af fernum bestu tónleikum ársins 2007 að mati dagskrárgerðarmanns RÚV, Arndísar Bjarkar Asgeirsdóttur. Domenico var beðinn um að endurtaka námskeiðs- og tónleikahald og leikur nú á Hömrum á Ísafirði og Salnum í Kópavogi.