Ísófónían fór fram nú á laugardaginn og var heldur betur vel sótt og var Ísafjarðarkirkja þéttséttinn. Skólalúðrasveitin kom fram ásamt Lúðrasveit T.Í undir stjórn Madis Mäekalle. Nemendur Beötu Joó komu fram og fluttu píanóverk átthent. Söngsmiðjan og barnakórinn fluttu eitt lag og að lokum stjórnaði Madis Ísófóníunni þar sem forskóli, kór og hljóðfæranemendur gerðu heldur betur sitt besta og glöddu gesti með frábærum flutning.