Dagur Tónlistarskólanna var haldinn hátíðlegur um allt land s.l. laugardag 23. febrúar. Tónlistarskóli Ísafjarðar hélt stórtónleika í Ísafjarðarkirkju fyrir fullu húsi. Hægt er að skoða myndir frá hátíðinni í myndaalbúmi síðunnar undir liðnum: Dagur tónlistarskólanna, en myndirnar tók Benedikt Hermannsson og eru honum sendar bestu þakkir fyrir.