Píanóleikarinn Tuuli Rähni hefur nú verið ráðin sem deildarstjóri útibús Tónlistarskóla Ísafjarðar á Þingeyri á komandi vetri. Henni til aðstoðar við kennsluna verður maður hennar, klarinettuleikarinn Selvadore Rähni. Saman munu þau bjóða upp á fjölbreytt námsframboð, píanó, harmóníku, blokkflautu, þverflautu, klarinett, saxófón, kornett, gítar, bassa, trommur, hljómsveitastarf og dægurlagasöng.
Þau Tuuli og Selvadore eru búsett í Bolungarvík þar sem hann starfar sem skólastjóri við Tónlistarskólann. Þau hafa starfað á Íslandi frá árinu 2005, en þar áður höfðu þau starfað í Japan. Tuuli og Selvadore eru bæði afar vel menntaðir kennarar og einstaklega færir hljóðfæraleikarar, en þau héldu einmitt saman metnaðarfulla tónleika í Hömrum sl. vor, auk þess sem þau komu fram á 100 ára afmæli Þingeyrarkirkju.
Innritun tónlistarnema á Þingeyri verður þriðjudaginn 30.ágúst kl. 17-19 í húsnæði Tónlistarskólans í Félagsheimilinu. Þar verða þau hjónin bæði ásamt skólastjóra Sigríði Ragnarsdóttur og geta kynnt sér námsframboð og fyrirkomulag tónlistarnámsins í vetur.