Haustþing vestfirskra tónlistarkennara verður haldið á Núpi í Dýrafirði föstudaginn 28.ágúst. Það er Félag tónlistarskólakennara í Kennarasambandi Íslands sem stendur fyrir þinginu sem nú er haldið í 7.sinn.
Á þinginu verður m.a. fjallað um niðurstöður úr nýlegri könnun á starfsemi íslenskra tónlistarskóla, drög að frumvarpi til laga um tónlistarfræðslu og stöðu og framtíðarhlutverk Listaháskóla Íslands (LHÍ)gagnvart kennurum og stjórnendum tónlistarskóla.
Meðal gesta og frummælenda á þinginu verða Sigrún Grendal formaður Félags tónlistarskólakennara, Árni Sigurbjarnarson varaformaður félagsins, Hjálmar H. Ragnarsson rektor LHÍ og Mist Þorkelsdóttir forseti tónlistardeildar LHÍ.