Gleðisveitin Mandolin

27. september 2018 | Fréttir

Kæri tónlistarunnandi,

Tónlistarfélag Ísafjarðar langar til að benda á tónleika næstkomandi laugardag kl. 17:00, en þá mætir hljómsveitin Mandolin til Ísafjarðar og heldur tónleika í Hömrum.

Mandólín er gleðisveit og hefur spilað víða um land við góðar undirtektir. Komið og hlýðið á seiðandi tónavef ofinn úr fjölskrúðugum þráðum, skreyttan söngperlum frá framandi slóðum. 

Á efnisskránni er tónlist úr smiðjum Shostakovich, Kurt Weill og Astor Piazzolla í bland við sprellfjöruga klezmertónlist, finnska tangóa, ameríska angurværð og balkanstuð eins og það gerist best. Fyrir utan allt hitt

Tónleikarnir hefjast klukkan 17 og aðgangseyrir er 3000 krónur. Eldri borgarar og öryrkjar 2000 krónur, ókeypis inn fyrir 12 ára og yngri.

Hljómsveitina skipa:

Elísabet Indra Ragnarsdóttir, fiðla
Guðrún Árnadóttir, fiðla og söngur
Martin Kollmar, klarinett og söngur
Óskar Sturluson, gítar og söngur
Ástvaldur Traustason, harmónika
Sigríður Ásta Árnadóttir, harmónika og söngur
Bjarni Bragi Kjartansson, kontrabassi

 

 Með tónlistarkveðju

Tónlistarfélag Ísafjarðar

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is

Nýlegar færslur