Tónlistarskóli Ísafjarðar minnist 200 ára afmælis tónskáldsins Chopin á síðasta ári með tónleikum í Hömrum miðvikudagskvöldið 6.apríl kl. 20:00.
Á tónleikunum flytja nemendur skólans verk eftir Chopin á píanó og fiðlu auk söngs, en einnig verða fluttar útsetningar fyrir gítartríó og hljómsveit skólans. Á tónleikunum verður ævi tónskáldsins rifjuð upp og sýndar myndir af honum og samtíðarmönnum hans. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill.