Í dag voru svokallaðir skólatónleikar í Hömrum þar sem tónlistarnemar úr þremur árgöngum léku á hljóðfæri fyrir bekkjafélaga sína og kennara. Um er að ræða árvissan viðburð sem gefist hefur vel og er samstarfsverkefni Grunnskólans á Ísafirði, Tónlistarskóla Ísafjarðar og Listaskóla Rögnvaldar. Að þessu sinni voru það 5. og 8. bekkur annars vegar og 4. bekkur hins vegar. Nær 50{fcde07e706e9e50417e7ce882b806dad0dd411ec15064b6af1103d0390c39a04} nemenda í 4. bekk stunda tónlistarnám. Allir stóðu sig með prýði og voru áheyrendur til fyrirmyndar og hlustuðu af áhuga. Við þökkum nemendum og kennurum kærlega fyrir komuna og hlökkum til heimsóknar þeirra á næsta ári.