Nýlega fóru Grunnskólinn á Ísafirði og Tónlistarskólinn af stað með blásaraverkefni í 5.bekk. Allir nemendur 5.bekkjar koma í tíma á kornett og klarinett, fjórir krakkar í einu, tvisvar í viku. Þannig fá allir þessir krakkar tækifæri til að kynnast hljóðfæraleik auk þess sem þetta skilar vonandi nemendum inn í lúðrasveitir skólans.
Nú koma allir nemendurnir, 36 talsins, í tímana en ráð er gert fyrir að einhverjir muni heltast úr lestinni þegar líður á önnina.
Skólarnir hafa áður unnið með svipuð verkefni en ekki síðan kreppan skall á. Það er Madis Mäekalle sem sér um kennsluna eins og í fyrri verkefnum.