Innritun í tónlistarnám á Flateyri fer fram í Grunnskóla Flateyrar, 2. hæð miðvikudaginn 24. ágúst kl. 16-17. Nýjir nemendur þurfa að fylla út umsóknareyðublað og gera greiðslusamning. Nemendur frá fyrra ári þurfa einnig að koma og staðfesta umsókn um skólavist með undirskrift og greiðslusamningi. Hægt er að nálgast öll eyðublöð á heimasíðu skólans, tonis.is.