Skólalúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar heldur stutta hádegistónleika í anddyri Grunnskólans á Ísafirði kl. 12:30 fimmtudaginn 11.nóvember. Tónleikarnir eru sérstaklega ætlaðir grunnskólanemum en allir eru velkomnir. Sveitina skipa tónlistarnemar á grunnskólaaldri. Stjórnandi er Madis Maeekalle.
Myndin var tekin á skólatónleikum sveitarinnar 2009.