Tónlistarfélagið var beðið að kynna tónleika Kristjáns Jóhannssonar tenórsöngvara, sem verða laugardaginn 15. maí klukkan 17:00 í Íþróttahúsinu á Torfnesi. Á dagskránni eru þekkt sönglög og óperuaríur í flutningi Kristjáns og sex söngvara af yngri kynslóðinni sem flestir eru hans nemendur. Píanóleikari er Aladár Rácz.
Söngvinir Kristjáns eru sópransöngkonurnar Erla Káradóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Lilja Guðmundsdóttir, tenórarnir Birgir Oskarsson og Rúnar Þór Guðmundsson og loks Kristján Ingi Jóhannesson bassi
Miðasala í Bókahorninu á Ísafirði og á Midi.is
slóðin http://midi.is/tonleikar/1/5875/