Sigríður Ragnarsdóttir, skólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði, hélt upp á 60 ára afmæli sitt á laugardag með „Afmælistónum“ í Hömrum. Þar komu fjölskylda Sigríðar, samstarfsmenn og vinir saman, hátt í 200 manns, til að fagna með afmælisbarninu. Flutt var glæsileg tónlistardagskrá og fylgir hún hér á eftir til gamans, en að henni lokinni voru bornar fram veitingar.
Tónlistardagskráin:
Afmælistónar Siggu – 31.10.2009
Kynnir var Hjálmar H. Ragnarsson
1. Tónlistaratriði kennara Tónlistarskólans. Gamanvísur samdar af Sjöfn Kristinsdóttur við lög úr Söngvaseið.
2. Tómas Árni Jónasson, píanó – Rachmaninoff: Prelúdía í g-moll
3. Guðrún Jónsdóttir og Ingunn Ósk Sturludóttir söngur, Beáta Joó, píanó
Bjarni Þorsteinsson: Sólsetursljóð
Jónas Tómasson: Upp á himins bláum boga
4. Tinna Þorsteinsdóttir, píanó – Hilmar Þórðarson: Synonymous
5. Dúóið Halldór S. (Halldór Sveinsson fiðla og Halldór Smárason harmónika)
Frumsamið lag: Vals fyrir Ásgeir S.
6. Anna Áslaug Ragnarsdóttir, píanó
Jónas Tómasson: Sónata VIII
F.Chopin: Barcarolle
7. Ísafjarðardætur (Margrét Geirsdóttir, Anna Marzellíusdóttir og Ingunn Ósk Sturludóttir) ásamt Baldri Geirmunds o.fl. :
Afmælisvísur (samdar af Guðríði Guðmundsdóttur)
8. Halldór Smárason, píanó – Frumsamið: Til Siggu
9. Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Anna Áslaug Ragnarsdóttir, píanó
Puccini: Quando men vo (Aría Músettu)
Dvorák: Mánaskinsarían (úr Rúsölku)
Verdi: Caro nome (Aría Gildu úr Rigoletto)
10. Sunnukórinn – Stjórnandi: Ingunn Ósk Sturludóttir
Undirleikur: Beáta Joó, píanó, Baldur Geirmundsson píanó, Jón Hallfreð Engilbertsson gítar, Samúel Einarsson bassi, Tumi Þór Jóhannsson trommur
Jón Ásgeirsson/Halldór Laxness: Hjá lygnri móðu
Baldur Geirmundsson / Ólína Þorvarðardóttir: Saknaðarljóð
Afmælissöngur eftir Þórarin Eldjárn og Atla Heimi Sveinsson
Wien, Wien
11. Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar lék í hléi
13. Ólafur Kristjánsson, fv. skólastjóri Tónlistarskólans í Bolungarvík skemmti gestum með píanóleik meðan þeir nutu veitinga að loknum tónleikum.