Hulda Bragadóttir hóf nám í píanóleik við Tónlistarskóla Ísafjarðar níu ára gömul hjá Sigríði Ragnarsdóttir, en síðar í tíu ár hjá Ragnari H. Ragnar. Eftir fjögurra ára nám við Tónlistarskólann í Reykjavík undir handleiðslu Halldórs Haraldssonar, lauk hún píanókennara- og einleikaraprófi. Eftir tveggja ára píanókennslu við Tónlistarskólann á Akureyri, tók við mastersnám við Tónlistarháskólann í Cincinnati, Ohio í Bandaríkjunum.
Hulda hefur sótt fjölmörg námskeið í píanóleik auk námskeiða í orgelleik og kórstjórnun í Skálholti á vegum Söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar. Hún starfar nú sem organisti Ísafjarðar- og Hnífsdalssókna til 20 ára auk þess að starfa sem meðleikari og aðstoðarskólastjóri við Tónlistarskóla Ísafjarðar.