Við Tónlistarskóla Ísafjarðar starfa reglulega tvær lúðrasveitir, stundum þrjár, allar undir stjórn Madis Maeekalle.
Sveitirnar koma fram á tónleikum skólans, við ýmis tækifæri s.s. opnun Skíðaviku, 1. maí o.s.frv. Sveitirnar halda opinbera tónleika í Ísafjarðarkirkju snemma í maí á hverju ári.
Skólalúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar er fyrir nemendur á grunnskólaaldri, sem ýmist eru nemendur T.Í. eða hafa verið það um lengri eða skemmri tíma. Sveitin æfir tvisvar í viku
Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar er skipuð lengra komnum nemendum og öðrum fulloðrnum sem stundað hafa nám á blásturshljóðfæri um lengri eða skemmri tíma og ýmsum þekktum reynsluboltum úr ísfirsku tónlistarlífi. Sveitin æfir tvisvar í viku.
„Miðsveitin“ er skipuð lengra komnum nemendum Tónlistarskólans. Hún æfir einungis tímabundið fyrir tónleika.