Fiðla er strengjahljóðfæri með 4 strengi og er minnsta hljóðfærið í fiðlufjölskyldunni en með hæsta tónsviðið. Hin hljóðfærin eru lágfiðla, selló og kontrabassi. Fiðla samanstendur af búk og hálsi. Á búknum er oftast hökubretti og strengjabretti með stilliskrúfum. Leika má á fiðlu með boga eða plokka með fingrunum. Fiðlan á sér mjög langa sögu, en hljóðfærið sem við þekkjum í dag er ítalskt frá 16. öld. Frá því á barokktímanum hefur fiðlan verið eitt mikilvægasta hljóðfæri sígildrar tónlistar varðandi laglínur.