Skólareglur Tónlistarskóla Ísafjarðar
1. Forráðamenn fá bankakröfur fyrir skólagjöldum, sem skipt er í fjórar greiðslur, september, október, febrúar og mars.
2. Tónlistarskólinn á nokkur hljóðfæri til útleigu. Forráðamenn þeirra nemenda sem þau nota greiða leigugjald.
3. Góð umgengni og meðferð hljóðfæra er áskilin. Nemendum og kennurum er óheimilt að fara með hljóðfæri út úr skóla nema að fengnu leyfi frá skólastjóra/aðstoðarskólastjóra.
4. Nemendur skulu vera stundvísir, stunda námið vel og ætlast er til að þeir valdi ekki truflunum í kennslustundum eða á göngum skólans.
5. Allir nemendur skólans komi fram á tónleikum a.m.k. einu sinni á önn. Nemendur mega ekki leika opinberlega í nafni skólans nema með vitund og leyfi kennara og/eða skólastjóra.
6. Ætlast er til að nemendur sæki tónleika, samæfingar og aðra félagsstarfsemi sem skólinn stendur fyrir.
7. Nemendur taki áfangapróf samkvæmt núgildandi aðalnámsskrá tónlistarskólanna. Þeir nemendur sem ekki taka fyrrnefnd próf taka vorpróf innanhúss og allir nemendur spila/syngja á vortónleikum, eftir því sem kostur er.
8. Forfallist nemandi ber forráðamanni að tilkynna það með fyrirvara. Hægt er að nota SpeedAdmin appið til þess. Kennara ber ekki að bæta upp leyfi eða veikindi nemenda. Komi nemandi meira en 15 mínútum of seint í kennslustund er kennara heimilt að fella hana niður. Mæti nemandi ekki í kennslustund án tilkynningar skal kennari hafa samband við forráðamann. Mæti nemandi ekki í 2 vikur samfleytt án tilkynningar til skóla er litið svo á að nemandi hafi hætt. Ekki er um endurgreiðslu skólagjalda að ræða í slíkum tilfellum.
9. Veikist kennari fellur kennsla hjá viðkomandi niður. Kennara ber ekki að bæta upp veikindadaga sína. Vari veikindin lengur en tvær vikur ber skólanum að útvega forfallakennslu sé þess nokkur kostur, annars komi til endurgreiðsla skólagjalda.
10. Göngum hljóðlega og vel um húsnæði tónlistarskólans sem og alla muni hans. Nemandi sem veldur skemmdum á húsnæði og/eða munum skólans bæti fyrir þær.
11. Jólafrí, páskafrí og aðrir frídagar fara eftir skóladagatali tónlistarskóla. Reynt er eftir fremsta megni að samræma skóladagatöl ólíkra skólagerða.