- This viðburður has passed.
Ulrike Haage í Hömrum
04.05.2018 @ 17:00 - 18:00
FreeFöstudaginn 4. maí bjóða gestavinnustofur ArtsIceland á Ísafirði, í samstarfi við Tónlistarskóla Ísafjarðar, til síðdegistónleika í Hömrum með þýsku tónlistarkonunni Ulrike Haage. Þar mun hún spila brot úr verkum sínum, bæði nýjum verkum sem hún hefur unnið að á Ísafirði, sem og brot úr kvikmyndatónlist sinni, meðal annars úr myndinni Greetings from Fukushima sem frumsýnd var á Stockfish kvikmyndahátíðinni á síðasta ári.
Enginn aðgangseyrir, léttar veitingar í boði