Ágota Joó er fædd í Ungverjalandi. Hún hóf pianónám 7 ára, gekk svo í Listamenntaskóla á pianóbraut. Hún útskrifaðist frá Franz Liszt Tónlistarháskólanum í Szeged, sem pianókennari, tónfræðikennari og kórstjóri.
Hún flutti til Íslands árið 1988, kenndi þar við Tónlistarskóla Ísafjarðar. Árið 1991 flutti hún til Njarðvíkur og kenndi þar á pianó við Tónlistarskóla Njarðvíkur. Hún var kórstjóri Kvennakórs Suðurnesja í nokkur ár og undirleikari Karlakórs Keflavíkur í mörg ár og lék m.a. inn á tvo diska með þeim. Ágota stjórnar Kvennakór Reykjavíkur og Senjórítum Kvennakórs Reykjavíkur. Hún hefur kennt við Tónskólann Do Re Mi frá árinu 2006.