Próf – Námsmat

6. september 2011 | Skólanámskrá

Tónlistarskóli Ísafjarðar starfar skv. námskrá Menntamálaráðuneytisins. 

 

Allir nemendur fá vetrareinkunnir fyrir ástundun og árangur á skólaárinu sem byggist á

framförum þeirra yfir árið og frammistöðu á tónleikum.

 

 

Í skólanum er tvenns konar prófakerfi í hljóðfæraleik og söng: Áfangaprófakerfi og að hluta stigsprófakerfið sem var í gildi áður en áfangaprófin komu til sögunnar.

Áfangaprófin eru þrjú: Grunnpróf, Miðpróf og Framhaldspróf.

Ekki komast allir nemendur svo langt að geta lokið grunnprófi, þannig að skólinn býður nemendum upp á að taka 1. og 2. stig áður en að grunnprófi kemur, en það er að nokkru leyti sambærilegt við gamla 3.stigsprófið. 

Þá býðst nemendum að tka 4. stig áður en kemur að miðprófi (en það er sambærilegt við gamla 5.stigið). Að miðprófi loknu geta nemendur tekið 6. og 7. stig, en síðast kemur framhaldspróf.

Prófdómarar í áfangaprófum eru sérstaklega þjálfaðir og koma utan skólans, en stigspróf eru dæmd af kennurum skólans.

Mjög strangar kröfur eru settar varðandi alla próftökuna til að tryggja hlutleysi prófdómarans og til að sú samræming náist, sem prófin eiga að leiða til. 
 

Skólaárið 2010-2011 luku 53 nemendur skólans (tæpur fjórðungur nemenda) stigsprófi eða áfangaprófi á skólaárinu.

23 nemendur þreyttu áfangapróf (grunn- , mið- og framhaldspróf) á ýmis hljóðfæri og náðu allir prófunum, þar af 6 með ágætiseinkunn 9 eða hærra. Hæstu einkunn, 9,4, hlaut Maksymilian Frach sem tók framhaldspróf.

Prófdómarar voru skipaðir, valdir og sérþjálfaðir af Prófanefnd tónlistarskóla.

 

Þá luku 30 nemendur stigsprófum, aðallega 1. og 2. stigi, en líka 4. 6. og 7. stigi.

 

Einnig tók nokkur hópur nemenda stigspróf og áfangapróf í tónfræðigreinum.