Heimstenór og tónlistarsení Sveinn Dúa Hjörleifsson og Bjarni Frímann Bjarnason flytja á þessum tónleikum stórvirki íslenskra sönglaga í bland við ástúðlegar þýskar tónbókmenntir. Miðaverð er 3000 kr., en 2000 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Aðgangur ókeypis er fyrir skólafólk 20 ára og yngra. Miðar á tónleikana verða seldir við inngang.
Kvartett gítarleikarans Andrésar Þórs leikur lög af glænýjum diski hans, Paradox sem var hljóðritaður á síðasta ári í Brooklyn í New York. Á disknum, sem er sá sjötti í röðinni er að finna níu frumsamda jazzópusa sem sækja áhrif sín úr ýmsum áttum, allt frá þjóðlagatónlist til skammtafræði. Ásamt Andrési skipa kvartettinn píanóleikarinn Agnar Már Magnússon, kontrabassaleikarinn […]