Tónlistarfélag Ísafjarðar bendir tónlistarunnendum á þessa flottu tónleika í Hömrum sunnudaginn 6. október 2019, kl.17:00 en það eru þær Guðrún Dalía Salómonsdóttir og Margrét Hrafnsdóttir sem bjóða til tónleikaveislu. Miðar verða seldir við innganginn. Miðaverð: 2.900,- en 2.500,- fyrir nemendur og eldri borgara. Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði. https://www.facebook.com/events/541551353283848/
Kæru tónlistarunnendur, verið hjartanlega velkomin á 1. áskriftartónleika Tónlistarfélags Ísafjarðar starfsárið 2019/2020. Næstkomandi laugardag þann 12. október 2019 sækja okkur heim listamennirnir Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir fiðlu- og básúnuleikari og Ingi Bjarni Skúlason píanóleikari. Miðar á tónleikana verða seldir við innganginn. Miðaverð er 3000 kr., en 2000 kr. fyrir eldriborgara og öryrkja. Ókeypis er fyrir skólafólk […]
Opið hús verður í Tónlistarskóla Ísafjarðar laugardaginn 26. október n.k. Í boði verður hið hefðbundna innlit í kennslustofur þar sem gestum og gangandi mega spreyta sig á hin ýmsu hljóðfæri. Veturinn fær að njóta sín í teikningu og tónum úr smiðju yngri kóra og forskólabarna. Sýnd verður Buster Keaton myndin The Boat við undirleik nemenda […]
Veturnætur Árni Heiðar Karlsson og Gissur Páll Gissurarson flytja íslensk sönglög af nýjum geisladiski, Við nyrstu voga. Samstarf Gissurar Páls Gissurarsonar og Árna Heiðars Karlssonar spannar rúman áratug og hefur það verið afar farsælt. Þeir hafa nú tekið upp brot af því besta af því samstarfi sem þeir hafa átt í gegnum árin sem kemur […]
Heimstenór og tónlistarsení Sveinn Dúa Hjörleifsson og Bjarni Frímann Bjarnason flytja á þessum tónleikum stórvirki íslenskra sönglaga í bland við ástúðlegar þýskar tónbókmenntir. Miðaverð er 3000 kr., en 2000 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Aðgangur ókeypis er fyrir skólafólk 20 ára og yngra. Miðar á tónleikana verða seldir við inngang.