Vortónleikar á Flateyri

12. maí 2016 | Fréttir

Í gær fóru fram vortónleikar á Flateyri.  Nemendur léku af myndarskap hvert lagið af öðru og í lokin söng kór Grunnskólans nokkur lög undir stjórn Dagnýjar Arnalds.  Hulda Bragadóttir kvaddi sem útibússtjóri og var þessi mynd tekin af því tilefni.