Ulrike Haage

2. maí 2018 | Fréttir

Föstudaginn 4. maí bjóða gestavinnustofur ArtsIceland á Ísafirði, í samstarfi við Tónlistarskóla Ísafjarðar, til síðdegistónleika í Hömrum með þýsku tónlistarkonunni Ulrike Haage. Þar mun hún spila brot úr verkum sínum, bæði nýjum verkum sem hún hefur unnið að á Ísafirði, sem og brot úr kvikmyndatónlist sinni, meðal annars úr myndinni Greetings from Fukushima sem frumsýnd var á Stockfish kvikmyndahátíðinni á síðasta ári.

Tónleikarnir hefjast klukkan 17. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir. Léttar veitingar í boði.

Ulrike Haage er tónskáld, píanisti, hljóðlistakona og útvarpsleikritahöfundur. Hún býr og starfar í Berlín. Frá árinu 2004 hefur hún gefið út fjórar sóló-plötur sem notið hafa mikillar virðingar: Sélavy, Weisses Land, in:finitum og Maelstrom. Á plötunum blandar hún saman jazzi, framúrstefnu- og klassískri tónlist. Hljóðverk Ulrike sýna á ríkulegan máta innblástur hennar og tengsl inn í önnur listform, þá sér í lagi kvikmyndalist. Hún hefur samið tónlist við heimildarmyndirnar Zwiebelfische, Gold Rush, Meret Oppenheim, The lost M og kvikmyndina Greetings from Fukushima. Þar rennur tónlistin saman á áreynslulausan hátt við hið sjónræna. Einnig hefur hún samið fyrir útvarp og unnið þar bæði með tónlist og texta. Á ferlinum hefur Ulrike unnið til Þýsku jazz-verðlaunanna og verið verðlaunuð fyrir kvikmyndatónlist sína. Tónlistin hefur hlotið lof gagnrýnenda sem meðal annars hafa sagt hvert lag listaverk í sjálfu sér og í henni finnist sterkasta stemningin með fæstu nótunum.

Á Ísafirði hefur Ulrike stundað rannsóknarstörf ásamt því sem hún hefur verið við tónsmíðar og segir hún Ísland með sína alltumvefjandi og sterku náttúru vera góða staðsetningu til sköpunar. Hún vinnur nú að tónlist fyrir nýjustu heimildarmynd hins þekkta, þýska kvikmyndagerðarmanns Volker Koepp, þar sem Eystrasalt leikur stórt hlutverk og segir Ulrike það hafa verið sannan innblástur að vera umkringd lífinu við sjávarsíðuna á Ísafirði fyrir það. Í tónsmíðunum fæddist hringrás píanóstefa sem endurspegla hugsanir um veröldina í dag, samband okkar við hafið og okkur sjálf. Tónlist Ulrike hefur verið sögð hafa heilandi gæði og vonast hún til að mega færa í heiminn tónlist sem heilar, veitir innblástur og býr til pláss fyrir tengingar hjá áheyrendunum. Tónlistin sem Ulrike vinnur nú að verður gefin út á þessu ári og verður hún tileinkuð Íslandi og öllu fólkinu sem veitti henni brautargengi.

 

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is