Tónlistarfélag Ísafjarðar

30. ágúst 2018 | Fréttir

Verið velkomin á stórtónleika með okkar ástsæla bassasöngvara, Kristni Sigmyndssyni og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara. Tónleikar þessir verða fyrstu tónleikar Tónlistarfélagsins tónleikaárið 2018/2019 og jafnframt upphafið af stórafmælisári félagsins og Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Á efnisskránni má m.a. hlýða á ljóð eftir F. Schubert, R. Schumann, og Atla H. Sveinsson auk undurfagurra antik-aría.
Tónleikar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Miðar á tónleikana verða seldir við innganginn.
Miðaverð er kr. 3.000, en kr. 2.000 fyrir eldri borgara og öryrkja, og ókeypis er fyrir skólafólk 20 ára og yngri.

Kristinn Sigmundsson lagði stund á söngnám hjá Guðmundi Jónssyni, Helene Karusso og John Bullock. Hann hefur komið fram í óperu- og tónleikahúsum víðsvegar um heim í u.þ.b. þrjá áratugi, svo sem New York, San Francisco, Los Angeles, Milano, London, Berlín, Amsterdam, Brüssel, Tokyo og Beijing. Hann hefur sungið yfir 100 óperuhlutverk. Meðal þeirra má nefna Gurnemanz(Parsifal), König Heinrich(Lohengrin), Daland(Hollendingurinn Fljúgandi), Landgraf(Tannhäuser), Marke Konung(Tristan og ísold), Rocco(Fidelio), Baron Ochs (Rósariddarinn), LaRoche (Capriccio), Mephistopheles(Faust) og Osmin (Brottnámið úr kvennabúrinu) Hann hefur haldið marga ljóðatónleika á Íslandi, aðallega með Jónasi Ingimundasyni. Þeir hljóðrituðu Svanasöng og Vetrarferð Schuberts, auk nokkurra diska með íslenskum og erlendum sönglögum. Hann hefur auk þess tekið upp Vetrarferðina með Víkingi Ólafssyni. Af öðrum upptökum má nefna Don Giovanni og Töfraflautuna undir stjórn Arnolds Östman(Decca),Jóhannesar- og Mattheusarpassíu Bachs með Franz Bruggen(Phillips) Szenen aus Goethes Faust eftir Schumann undir stjórn Philippe Heereweghe(Harmonia Mundi), Fidelio undir stjórn Sir Colin Davis(London Symphony Orchestra), Die Gezeichneten eftir Franz Schreker, stj. Lothar Zagrosek(Deutsche Grammophon) og síðast en ekki síst, The Ghosts of Versailles eftir John Corigliano undir stjórn James Conlon(Los Angeles Óperan). Sú upptaka vann til tvennra Grammy-verðlauna nú í febrúar. Meðal viðurkenninga sem Kristinn hefur hlotið eru: 1983: Philadelphia Opera prize og Opernwelt-verðlaunin í Belvedere óperusöngvarakeppninni í Vín 1991: Stämgaffeln – Det klassiska svenska fonogrampriset 1995: Íslensku tónlistarverðlaunin 1995: Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 2005: Bæjarlistamaður Kópavogs 2010: Íslensku tónlistarverðlaunin 2011: Íslensku tónlistarverðlaunin 2011: Útflutningsverðlaun Forseta Íslands og Íslandsstofu 2015: Grímuverðlaun – Söngvari ársins 2016: Íslensku tónlistarverðlaunin – Heiðursverðlaun. 2017: Grammy awards Næsta óperuverkefni Kristins verður Hollendingurinn fljúgandi eftir Wagner í óperunni í Atlanta í október.

ANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík þar sem kennarar hennar voru Hermína S. Kristjánsson, Jón Nordal og Margrét Eiríksdóttir, en þangað kom hún úr Barnamúsíkskólanum þar sem Stefán Edelstein var kennari hennar. Hún hélt síðan til náms við Guildhall School of Music í Lundúnum og lauk þaðan Post Graduate Diploma. Hún hefur síðan starfað á Íslandi við margvísleg störf píanistans, í kammertónlist, meðleik og sem einleikari. Hún kemur reglulega fram á Listahátíð í Reykjavík og hefur m.a. leikið á tónlistarhátíðunum Reykjavík Midsummer Music og Reykholtshátíð. Hún er píanóleikari Kammersveitar Reykjavíkur, hefur ferðast víða með henni og leikið inn á geisladiska, en alls hefur hún leikið inn á um 30 diska með ýmsum listamönnum. Anna Guðný hefur auk þess leikið með Karlakór Reykjavíkur á vortónleikum þeirra í yfir 20 ár og leikur með hljómsveitinni Salon Islandus. Hún starfaði við tónlistardeild Listaháskóla Íslands frá stofnun hennar 2001 til ársins 2005 þegar hún var fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Í dag starfar hún einnig sem píanóleikari við Menntaskóla í tónlist. Anna hefur þrisvar sinnum verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og hlaut þau árið 2008 sem flytjandi ársins.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is