Skólatónleikar í Hömrum

14. apríl 2016 | Fréttir

Skólatónleikar fóru fram í Hömrum, sal Tónlistarskólans, s.l. þriðjudag.  Það voru  nemendur og kennarar í 4. og 8. bekk Grunnskóla Ísafjarðar sem komu í heimsókn í þetta sinn og hlustuðu á bekkjarsystkini sín flytja tónlist úr ýmsum áttum á píanó, þverflautu, klarinett, trommur og fiðlu.  Við þökkum þeim fyrir komuna og góðar undirtektir.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is