Frumleg og framsækin – NeoN í Hömrum

13. september 2013 | Fréttir

Norræni tónlistarhópurinn NeoN heldur tónleika í Hömrum fimmtudagskvöldið 19.september kl.20:00, en á tónlekunum verður leikið á flautu, klarinett, segulbönd, slagverk (m.a. víbrafón) og ýmis konar "dótarí" auk þess sem myndbönd (sápukúluvídeó) verða sýnd í bland við tónlistina.
Á tónleikunum verður leikgleðin höfð í fyrirrúmi og sérstök áhersla lögð á frumlega og framsækna tónlist eftir ung norræn tónskáld m.a íslensku tónskáldin Hafdísi Bjarnadóttur og Gunnar Karel Másson.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en þeir eru haldnir í samvinnu við Tónlistarfélag Ísafjarðar og með tilstyrk frá ýmsum aðilum.

NeoN-tríóið  er skipað flautuleikara, klarinettleikara og slagverksleikara úr norsku kammersveitinni Ensemble neoN. Kammersveitin samanstendur af níu hljóðfæraleikurum, einum stjórnanda og tveimur tónskáldum. Sveitin kom fyrst fram á sjónarsviðið á tónlistarhátíðinni Ultima festival í Osló árið 2009 og hefur allar götur síðan getið sér gott orð fyrir að vera spennandi og framsækinn hópur ungs tónlistarfólks. Ein megináhersla Ensemble neoN er að krydda sígilda samtímatónlist með hljóðheimi popptónlistarinnar, en sveitin leggur einnig áherslu á samstarf við sjónlistamenn og sviðslistamenn úr öðrum greinum.

Ane Marthe Holen (slagverk), Kristine Tjøgersen (klarinett) og Yumi Murakami (flauta) luku allar meistaragráðu frá Norges Musikkhøgskole á árunum 2009 og 2010. Í rúman áratug hafa þær leikið saman og sérhæft sig í flutningi sígildrar samtímatónlistar. Þær eru starfandi meðlimir í kammersveitunum Phaedra, Pinquins, Plygon, WeDoMagic og Ensemble neoN en leika þess utan reglulega með öðrum samtímasveitum í Noregi eins og Olso Sinfonietta, Cikada, Bodø Sinfonietta, Ensemble Ernst og Asamisimasa. Neon-trio hefur einnig töluverða reynslu í flutningi rytmískrar nútímatónlistar og popptónlistar.

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is