Dagur tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur með stórtónleikum í Ísafjarðarkirkju

17. febrúar 2017 | Fréttir

Á morgun, laugardaginn 18. febrúar kl. 14:00, heldur Tónlistarskóli Ísafjarðar Dag tónlistarskólanna hátíðlegan með stórtónleikum í Ísafjarðarkirkju. Dagskráin er fjölbreytt. Strengjasveitin leikur, lúðrasveitir skólans þeyta lúðra í hressilegum lögum, tveir nemendur skólans syngja og leika siguratriði Sam-Vest söngvakeppninnar, söngnemendur koma fram auk barnakóra skólans, rytmasveit T.Í. leikur tvö lög og Ísófónían mun svo enda tónleikana en í henni koma saman fjölmargir nemendur skólans í allsherjar tónaflóði.

Aðgangseyrir er 500 kr. og rennur ágóði til hljóðfærakaupa fyrir samspilshópa skólans.

Allir velkomnir og við vonumst til að sem flestir komi og gleðjist með okkur í tilefni dagsins!

Skrifstofan er opin frá 12:30-16:00.
Sími 450-8340
Tölvupóstur tonis@tonis.is